Sveitarfélagið Múlaþing​

Lyngási 12, 700 Egilsstaðir | Kt: 660220-1350 |
Sími: 4 700 700 | mulathing@mulathing.is

Straumur

Uppbygging á Straumi – nýjum miðbæ á Egilsstöðum er hafin. Nýi miðbærinn byggir á framsækinni framtíðarsýn og stefnu um virðingu fyrir umhverfinu. Skipulagið gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í bland við atvinnuhúsnæði til að skapa aðstöðu fyrir verslun og þjónustu sem laðar að íbúa og ferðamenn.

Markmið skipulagsins er að skapa vandaða miðbæjarbyggð og leggja grunn að fögru og vel byggðu umhverfi í góðum tengslum við útivistarsvæði. Byggðin hefur verið þétt til muna og hlutfall íbúða aukið til þess að ná betur markmiðum um blandaða byggð í anda vistvæns skipulags.

Með byggingu 161 nýrra íbúða og aukinna verslunarrýma verður miðbærinn elfdur og sú umgjörð sköpuð sem þarf til að laða að fleiri íbúa, fyrirtæki og gesti. Veðurfar þykir almennt nokkuð gott á Egilsstöðum og svæðið einstaklega gróðursælt.

Um að ræða einstakt tækifæri fyrir kröftuga uppbyggingu bæði í íbúabyggð og verslunarþjónustu. Ný göngugata, sem hefur fengið nafnið Ormurinn, bæjartorg og samkomusvæði styrkja öflugt mannlíf og gera svæðið að eftirsóttum stað til að búa á.

Skipulag
Skipulagið samanstendur af fjölbreyttu íbúðar- verslunar- og þjónustuhúsnæði til að skapa lifandi götumynd. Gróðursæl útivistarsvæði og tengingin við farþega sem ferðast í gegnum alþjóðaflugvöllinn á Egilsstöðum og með Norrænu opna einnig fyrir gríðarstór tækifæri í ferðamennsku. Með fögru umhverfi, góðri aðkomu og miklu framboði af þjónustu og afþreyingu er kominn grundvöllur fyrir öflugt mannlíf.

play-icon

51.526

fermetrar​

161

íbúðir

Einstök

veðursæld

Stór tækifæri ​

í ferðamennsku​

Alþjóðlegur

flugvöllur

Nálægð

við Norrænu​

51.526

fermetrar​

Einstök

veðursæld

Alþjóðlegur

flugvöllur

161

nýbyggingar​

Stór tækifæri ​

í ferðamennsku​

Nálægð

við Norrænu​

Ormurinn

Lykilþáttur í skipulagstillögunni er göngu- og verslunargata sem hefur fengið nafnið Ormurinn. Með fögru umhverfi, góðri aðkomu og miklu framboði af þjónustu og afþreyingu er kominn grundvöllur fyrir öflugt mannlíf.

Umhverfið

Egilsstaðir er höfuðstaður Austurlands og einn mikilvægasti viðkomustaður landsins. Lega bæjarins er við annasömustu vegamót fjórðungsins. Bærinn er vel tengdur fyrir samgöngur, á landi lofti og legi.

Tækifærin

Svæðið í heild hefur uppá fjölbreytta starfsemi og afþreyingu að bjóða. Ferðþjónusta hefur vaxið gríðarlega, mikil sóknarfæri eru í matvælaframleiðslu auk þess sem Egilsstaðir eru þjónustumiðstöð Austurlands.

Um Múlaþing

Múlaþing er stærsta sveitarfélag landsins, 10.671 fermkílómetrar að flatarmáli sem jafngildir rúmum 10% af flatarmáli Íslands.
Múlaþing varð til árið 2020 við sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Íbúar Múlaþings eru rúmlega 5000 sem dreifast í póstnúmer 700, 701, 710, 720 og 765.
Sveitarstjóri Múlaþings er Björn Ingimarsson.

Múlaþing

Um Múlaþing

Straumur byggir á framsækinni framtíðarsýn og stefnu um virðingu fyrir umhverfinu.Með byggingu 161 nýrra íbúða og aukinna verslunarrýma styrkjum við miðbæinn og sköpum þá umgjörð sem þarf til að laða að fleiri íbúa, fyrirtæki og gesti. Ný göngugata, bæjartorg og samkomusvæði styrkja öflugt mannlíf og gera svæðið að eftirsóttum stað til að búa á. Gróðursæl útivistarsvæði og tengingin við farþega sem ferðast í gegnum aljóðaflugvöllinn á Egilsstöðum og með Norrænu opna einnig fyrir gríðarstór tækifæri í ferðamennsku.

Múlaþing