Reitur 1
Á reit eitt eru tvær lóðir með samtals fjórum fjölbýlishúsum auglýstar til uppbyggingar. Kaupvangur 20 sem er að hámarki fjórar hæðir, Sólvangur 2 og 4 sem eru að hámarki þrjár hæðir og Sólvangur 6 sem verður á tveimur hæðum. Húsin standa næst innan við fyrirhugað samkomusvæði við enda Ormsins.
- Farðu með músina yfir grænu svæðin til þess að skoða nánar
Grunnmynd


Kaupvangur 20
Hámarkshæð bygginga er 10,5 m frá gólfkóta aðalhæðar. Húsagerð er frjáls hvað varðar efnisval og liti. Uppbrot í formi út- og innskota vera á 5 – 7 metra fresti til að mynda ekki einsleitan eða samfelldan flöt. Þakgerð er flatt þak, lagt er til að gróðurþekja þakið til að auka umhverfisgæði samhliða því að fegra ásýnd hverfisins. Svalir mega fara 2 m út fyrir byggingarreit. Sérafnotaréttur fylgir jarðhæð.
Skilmálar | Kaupvangur 20 |
---|---|
Skilmálar Stærð lóðar (m2) | Kaupvangur 20 2.627 |
Skilmálar Byggingarmagn ofanjarðar (A rými) | Kaupvangur 20 2.926 |
Skilmálar Byggingarmagn ofanjarðar (B rými) | Kaupvangur 20 348 |
Skilmálar Byggingarmagn neðanjarðar (A+B rými) | Kaupvangur 20 1.010 |
Skilmálar Heildar byggingarmagn samtals. | Kaupvangur 20 4.285 |
Skilmálar Hámarksfjöldi íbúða | Kaupvangur 20 18 |
Skilmálar Bílastæði innan lóðar | Kaupvangur 20 62 |
Skilmálar Bílastæði í bæjarlandi | Kaupvangur 20 10 |
Skilmálar Starfsemi | Kaupvangur 20 Verslun/þjónusta/íbúðir |
Skilmálar Hæðir, hámark | Kaupvangur 20 4 |



Sólvangur 2, 4 og 6
Hámarkshæð bygginga er 10,5 m frá gólfkóta aðalhæðar. Húsagerð er frjáls hvað varðar efnisval og liti. Uppbrot í formi út- og innskota vera á 5 – 7 metra fresti til að mynda ekki einsleitan eða samfelldan flöt. Þakgerð er flatt þak, lagt er til að gróðurþekja þakið til að auka umhverfisgæði samhliða því að fegra ásýnd hverfisins. Svalir mega fara 2 m út fyrir byggingarreit. Sérafnotaréttur fylgir jarðhæð.
Skilmálar | Sólvangur 2 | Sólvangur 4 | Sólvangur 6 |
---|---|---|---|
Skilmálar Stærð lóðar (m²) | Sólvangur 2 - | Sólvangur 4 6.876 (ein lóð) | Sólvangur 6 - |
Skilmálar Byggingarmagn ofanjarðar (A rými) | Sólvangur 2 2.268 | Sólvangur 4 1.266 | Sólvangur 6 1.172 |
Skilmálar Byggingarmagn ofanjarðar (B rými) | Sólvangur 2 1.260 | Sólvangur 4 124 | Sólvangur 6 74 |
Skilmálar Byggingarmagn neðanjarðar (A+B rými) | Sólvangur 2 760 | Sólvangur 4 420 | Sólvangur 6 590 |
Skilmálar Heildar byggingarmagn samtals. | Sólvangur 2 3.332 | Sólvangur 4 1.804 | Sólvangur 6 1.836 |
Skilmálar Hámarksfjöldi íbúða | Sólvangur 2 28 | Sólvangur 4 16 | Sólvangur 6 15 |
Skilmálar Bílastæði innan lóðar | Sólvangur 2 28 | Sólvangur 4 16 | Sólvangur 6 21 |
Skilmálar Starfsemi | Sólvangur 2 Íbúðir | Sólvangur 4 Íbúðir | Sólvangur 6 Íbúðir |
Skilmálar Hæðir hámark | Sólvangur 2 3 | Sólvangur 4 3 | Sólvangur 6 2 |