Reitur 3
Innan reitsins eru tvær lóðir til uppbyggingar en að Kaupvangi 4 er í dag starfrækt þjónustumiðstöð N1 ehf. Uppbyggingu verður skipt í þrjá áfanga. Fyrsti áfangi felur í sér framkvæmdir við gatnamót Fagradalsbrautar og Skriðdals- og Breiðdalsvegar þar sem þau verða færð og hringtorgi komið fyrir. Í öðrum áfanga verður lóð þjónustustöðvarinnar breytt og ný gata lögð samhliða göngugötunni (Orminum) sem heita mun Nývangur. Við hana verða bílastæði til að þjónusta göngugötuna. Uppbygging á nýjum lóðum við Nývang 4 og 6, fyrir verslun og þjónustu, getur hafist að loknum fyrstu tveimur áföngunum.
- Farðu með músina yfir grænu svæðin til þess að skoða nánar
Grunnmynd
Nývangur 4 og 6
Hámarkshæð bygginga er 8,5 m frá gólfkóta aðalhæðar. Húsagerð er frjáls hvað varðar efnisval og liti. Byggingin skal fylgja a.m.k. 80% lengdar bundinnar byggingarlínu. Á jarðhæð sem snýr að göngugötu (Ormurinn) skal vera uppbrot í formi út- og innskota að lágmarki þrisvar á hverju húsi til að mynda ekki einsleitan eða samfelldan flöt. Framhlið sem snýr að göngugötu skal vera að mestu leiti klædd gleri, ekki minna en 70%. Á annarri hæð skal uppbrot í formi út- og innskota vera á 5 – 7 metra fresti til að mynda ekki einsleitan eða samfelldan flöt. Handriðsflötur skal vera a.m.k. 70% af lengd hússins og vera gegnsætt þ.e.a.s. gler eða málmrimlar. Þakgerð er hefðbundið mænisþak með hliðarsettum mæni. Í hverju húsi skal vera stigahús til að komast upp á 2. hæð upp á sameiginlegar svalir sem snúa að göngugötu. Hægt er að nýta inn- og útskot að hluta til sem samrými (e. semi-public) fyrir framan inngang inn í íbúðir
Skilmálar | Nývangur 4 | Nývangur 6 |
---|---|---|
Stærð lóðar (m2) | 2.414 | (ein lóð) |
Byggingarmagn ofanjarðar (A rými) | 735 | 1.190 |
Byggingarmagn ofanjarðar (B rými) | 348 | 1.190 |
Byggingarmagn neðanjarðar (A+B rými) | 7 | 8 |
Heildar byggingarmagn samtals. | 4.285 | 4.285 |
Hámarksfjöldi íbúða | 18 | 18 |
Bílastæði innan lóðar | Bílastæði innan lóðar | 62 |